|
Heimsóknir
Í dag: 23 Alls: 107055
Spekin mín
Sjaldan er mótbáran rök
Sjaldan hylur kjóll leggi nema síður sé
Spekin mín
Sjaldan fellur eplið eins og flís við rass.
Oft er góð vísa aldrei kveðin.
Margur er smár þótt hann sé hár.
Oft fylgir öxull framdrifi.
Kapp er best á flatskjá.
Oft er litur í grænum haus.
Of snemmt er að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofaní.
Baslandi manni er best að lifa.
|
28.01.2012 20:21:10 / hallkri
Fullkomið jafnrétti næst aldrei á meðan horft er kynjagleraugum á heiminn. Sífelldur samanburður eyðileggur jafnréttisgrundvöllinn og byggir jafnóðum ofaná þann þröskuld sem reynt er að eyða.
»
04.01.2012 21:05:14 / hallkri
Bræðurnir Brandur Ari og Leifur Arnar eru báðir í íþróttum á sama tíma, en ekki á sama stað. Einhvertíma var faðirinn að skipuleggja ferðir þeirra og sagði við móðurina: "Ég fer með Brand Ara, þú tekur Leif Arnar."
»
24.12.2011 11:32:47 / hallkri

Um helga tíð er hækka fer á himni blessuð sólin gæfustjarnan gefi þér sem gleðilegust jólin!
»
28.11.2011 19:50:57 / hallkri
Á Íslandi er mjög takmörkuð virðing borin fyrir gildandi lögum. Því þykir tilhlýðilegt að höfða skaðabótamál á hendur stjórnvöldum, sem ekki veita undanþágu frá þeim!
»
16.11.2011 19:40:22 / hallkri
Næsta laugardag, 19. nóvember, verða opnar fyrir gesti og gangandi tvær vinnustofur í Litalandshúsinu, Furuvöllum 7, Akureyri. Í annari þeirra málar myndir Aðalbjörg Kristjánsdóttir og vinnur margskonar listmuni. Í hinni fæst Hallmundur Kristinsson við svipaða iðju. Þeir sem hafa áhuga og tök á að líta inn eru hjartanlega velkomnir á milli kl. 13 og 17.
»
15.10.2011 21:09:59 / hallkri
Á oss dynur vá og voði/
sem vissulega engan svíkur./
Af skelfingu menn skjálfa í boði/
Skjálftaveitu Reykjavíkur.
»
04.10.2011 21:54:38 / hallkri
Er gjáin á milli þings og þjóðar? Þings og forseta? Forseta og þjóðar?
Eða þingmanna?............................................................................................................................................................................................
Mér finnst ei skrýtið að myndist gjá/
og marga hún töluvert hræði;/
þannig er málið að Alþing er á/
alþekktu sprungusvæði!
»
02.10.2011 17:21:54 / hallkri
Send voru egg til seggja fast,/
sem þeir ei vildu hafa samt./
Alltaf þykir mér eggjakast/
eitthvað svolítið vafasamt!
»
02.10.2011 10:01:01 / hallkri
Menn eru rjúkandi Alþingi á/
upp til handa og fóta/
þótt aðeins sé verið að eggja þá/
til einhvers sem væri til bóta.
»
02.10.2011 09:59:51 / hallkri
Alþingismennirnir eru að fást/
við áritun sögunnar spjalda./
Hverfular vinsældir hvarvetna sjást,/
en hvers eiga eggin að gjalda?
»
29.09.2011 23:45:48 / hallkri
Þeirri spurningu er oft varpað fram. Svarið er einfalt. Menning felst í því að gera einfalda hluti flókna.
»
23.09.2011 23:46:51 / hallkri
Staðarbyggðarfjall 2009 akrýl á striga 50x40cm verð
kr.75000
»
22.09.2011 12:43:17 / hallkri
Kaldbakur 2009. Akryl á striga. 50x60cm. kr.85.000.
»
22.09.2011 08:20:58 / hallkri
Þess eru allmörg dæmi á meðal hjóna og sambýlisfólks að konan sé tekjuhærri en karlinn. Konan fer út að versla og fær 10% afslátt í nafni jafnréttis. Já,já.
»
20.09.2011 18:45:24 / hallkri
Þrjú 2009. Akryl á krossvið. 20x30cm. kr.35.000
»
Síður: 1 2 3 ... 26
|